Rithöfundur í heimsókn

Rithöfundur í heimsókn

Þriðjudaginn 13. nóvember fengum við í 2. og 3. bekk góðan gest í heimsókn í skólann. Dagbjört Ásgeirsdóttir höfundur bókarinnar Gummi  fer á veiðar með afa kom og las bókina fyrir nemendur og ræddi við þá um ýmislegt tengt bókinni. Næstu tvær vikur munu börnin vinna verkefni tengd bókinni í byrjendalæsi sem er lestrarkennsluaðferð sem unnið er eftir í skólanum. Við þökkum Dagbjörtu kærlega fyrir komuna og hlökkum til að heyra næstu sögu eftir hana.