Prófavika á eldra stigi

Þessa vikuna, 5.-10. nóv., eru nemendur eldra stigs í prófum. Um er að ræða möppupróf eða atrennupróf. Prófin eru öll sett í möppu og ráða nemendur í hvaða röð prófin eru leyst. Nemendur hafa klukkustund á dag til að leysa prófin og geta undirbúið sig heima og skoðað atriði sem betur þarf að þjálfa.