Norræn bókasafnsvika

8. -14. nóvember er Norræn bókasafnsvika.  Bókasafn Dalvíkur verður með dagskrá frá mánudegi til föstudags. Þema vikunnar er Töfraheimar Norðursins með áherslu á galdra og dularfulla atburði. Nemendur 4.-8. bekkjar að 7. bekk undanskildum koma í heimsókn sem tekur eina klst. Þeir mæta kl. 9:10 í bókasafnið, þar verður tekið á móti þeim og lesið upp úr bókum eftir norræna höfunda.