Nemendum afhent endurskinsmerki

Nemendum afhent endurskinsmerki

Á hverju hausti hefur lögreglan ásamt fulltrúa Landsbjargar afhent nemendum endurskinsmerki. Í morgun heimsóttu Felix og Jóna Gunna alla bekki og nú ættu allir nemendur okkar að eiga endurskinsmerki til að setja á sig fyrir svartasta skammdegið.