Nemandi vikunnar

Í næstu viku byrjum við á nýjung í skólanum sem við köllum Nemandi vikunnar. Fyrirkomulagið er þannig að einu sinni í viku, á mánudögum, er nafn eins nemanda dregið út og hann svarar nokkrum spurningum og svörin birt á heimasíðu skólans og upplýsingaskjá í skólanum. Þetta er einfaldur og skemmtilegur leikur sem gefur okkur tækifæri á að kynnast aðeins betur.