Námsmatsvika í Grunnskóla Dalvíkurbyggðar

Þessa vikuna 8.-12. nóvember er námsmatsvika í Grunnskóla Dalvíkurbyggðar. Í 7.-10. bekk Dalvíkurskóla eru nemendur í prófum frá 8-9 alla morgna vikunnar. Nemendur fá prófamöppu á mánudegi með fjórum prófum og hafa því 5 klst. til að leysa prófin. Sami háttur er hafður á í 7. og 8. bekk Árskógarskóla þó þar séu tímasetningar prófanna aðrar. Gert er ráð fyrir því að vitnisburður verði sendur heim rafrænt mánudaginn 29. nóvember.