Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar

Sigurvegarar Stóru upplestrarkeppninnar frá Dalvíkurskóla og Grunnskóla Fjallabyggðar. F.v. Þröstur …
Sigurvegarar Stóru upplestrarkeppninnar frá Dalvíkurskóla og Grunnskóla Fjallabyggðar. F.v. Þröstur Ingvarsson 2. sæti, Martyna Kulesza 1. sæti og Hjalti Trostan Arnheiðarson 3. sæti.

Lokahátíð Stóru upplestarkeppninnar var haldin í Bergi 6. mars. Sjö lesarar, fjórir frá Dalvíkurskóla og þrír frá Grunnskóla Fjallabyggðar, tóku þátt í jafnri og spennandi keppni. Martyna Kulesza Grunnskóla Fjallabyggðar, stóð uppi sem sigurvegari. Í öðru sæti lenti Þröstur Ingvarsson, Dalvíkurskóla og Hjalti Trostan Arnheiðarson, Dalvíkurskóla, lenti í þriðja sæti. Við óskum sigurvegurum til hamingju með árangurinn.