Undanfarið hefur 6. bekkur verið að læra um ljóð í íslensku. Sú vinna fól í sér að semja eigið ljóð um vorið eða sumarið. Verkefnið gekk vel og var ákveðið að heimsækja vinabekkinn þeirra, 1. bekk, og lesa og skoða með þeim ljóðin og leyfa þeim að myndskreyta þau. Þessi heimsókn gekk vonum framar og áttu krakkarnir notalega og skemmtilega stund saman. Afraksturinn eru svo frábær ljóð og fallegar myndir, sem hanga nú uppi á vegg við matsalinn þessa síðustu daga maí.
|
Við Mímisveg | 620 Dalvík Sími á skrifstofu: 460 4980 Netfang: ritari@dalvikurbyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:40 - 14:00. þriðjudaga og föstudaga
|
Tilkynningar um veikindi og beiðni um leyfi nemenda: 460-4980 / ritari@dalvikurbyggd.is