Lestrarvinir

Lestrarvinir

Dalvíkurskóli vinnur með læsi á fjölbreyttan hátt og í víðu samhengi. Við erum til að mynda þátttakendur í Erasmus+ verkefni með öðrum löndum um læsi. Nú erum við að byrja með verkefni sem heitir Lestrarvinir Dalvíkurskóla. Markmið verkefnisins er að efla lesfimi hjá nemendum og ákváðum við að byrja á 3. bekk. Fyrrum starfsfólk Dalvíkurskóla var tilbúið að koma að þessu verkefni með okkur og eru lestrarvinirnir okkar. Verkefnið hefur farið vel af stað og sýna börnin því mikinn áhuga að fá að lesa fyrir þau. Við teljum þetta dýrmæta viðbót við fjölbreytta lestravinnu sem er nú þegar í gangi.