Jólaföndur í Dalvíkurskóla

Jólaföndur

Hið vinsæla jólaföndur í Dalvíkurskóla verður föstudaginn 2. desember frá kl. 15:30 – 18:30.

Á sama tíma verða nemendur 10. bekkjar með kaffisölu, ágóði af henni rennur í ferðasjóð þeirra.
 
Það er þess virði að líta inn, föndra, fá sér kaffi og eiga ljúfa stund með börnum sínum og unglingum.
 
Nemendur, mömmur, pabbar, afar, ömmur, frænkur, frændur og aðrir velunnarar skólans velkomnir. Við hlökkum til að sjá ykkur.
 
Foreldrar. Sendið börnin ekki ein.
 
Starfsfólk Dalvíkurskóla