Hönd í hönd

Hönd í hönd

Þann 21. mars er alþjóðlegur dagur gegn kynþáttamisrétti. Af því tilefni eru um alla Evrópu haldnir viðburðir tengdir fjölbreytileika undir yfirskriftinni Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti. Síðustu ár hefur Mannréttindaskrifstofa Íslands staðið að margvíslegum viðburðum í samstarfi við ýmsa hópa ungs fólks á Íslandi. Í ár leitar Mannréttindaskrifstofan til grunnskóla um að vinna saman að táknrænu og skemmtilegu verkefni.