Háskólalestin stoppar á Dalvík

Háskólalestin stoppar á Dalvík

Vorið er komið og það þýðir Háskólalest Háskóla Íslands rúllar af stað um landið og verður stödd á Dalvík dagana 19.-21.maí með fjölbreytta dagskrá í boði. Haldnar verða kennarasmiðjur og námskeið fyrir grunnskólanemendur, en dagskránni lýkur svo með sannkallaðri vísindaveislu fyrir allt samfélagið.

Vísindaveisla Háskólalestar HÍ verður haldin í Menningarhúsinu Bergi, laugardaginn 21.maí kl.12-16.
Þar býðst fjölskyldumeðlimum á öllum aldri að kynnast undrum vísindanna með gangvirkum og lifandi hætti í gegnum fjölbreytt tæki, tól og smiðjur.
Verið hjartanlega velkomin – enginn aðganseyrir!

Megin áherslan í starfi Háskólalestarinnar er á að kynna vísindi á lifandi og fjölbreyttan hátt fyrir ungu fólki, styðja við starf grunnskólanna og efla tengsl við landsmenn á öllum aldri. Í áhöfn lestarinnar eru kennarar og nemendur við Háskóla Íslands, sem flestir hverjir eru líka leiðbeinendur í Vísindasmiðju HÍ og Háskóla unga fólksins.

Föstudaginn 20.maí mun nemendum í 6.-10.bekk Dalvíkurskóla bjóðast námskeið um flest allt milli himins og jarðar, þar sem fjallað verður m.a. um töfra ljóss og lita, efnafræði, blaða- og fréttamennsku, forritun með skynjurum og föndri, félagsmál og samskipti, sjúkraþjálfun, loftslagsbreytingar, dulkóðun, draugagang, tröll og þjóðsögur og japanskir menningarheimar skoðaðir.

Auk námskeiðanna fyrir unga fólkið verður sú nýjung í Háskólalestinni að þessu sinni að sérstakar kennarasmiðjur verða í boði fimmtudaginn 19.maí fyrir alla kennara á Norðurlandi. Vísindasmiðja Háskóla Íslands hefur undanfarin ár boðið kennurum í fjölbreyttar smiðjur, með áherslu á verklega fræðslu og tilraunir. Mikil eftirspurn hefur verið eftir endurmenntun af þessu tagi og nú verða valdar smiðjur í boði fyrir kennara á landsbyggðinni. Stefnt er á að gera þessa þjónustu að föstum lið í Háskólalestinni.

Háskólestin hefur heimsótt hátt á fjórða tug áfangastaða um allt land og fengið einstaklega hlýjar móttökur hvert sem komið er. Það er því alltaf mikið tilhlökkunarefni að hefja ferðina ár hvert með fjölbreytta fræðslu í en allt starf lestarinnar er skipulagt í nánu samstarfi við sveitarfélög og skóla hvers áfangastaðar.

Það má því með sanni segja að tilhlökkun sé í lofti fyrir fjölbreyttri fræðslu Háskólalestarinnar í frábærum félagsskap ungu kynslóðarinnar.

Kær kveðja og hlökkum til að sjá sem flesta,

Áhöfn Háskólalestar Háskóla Íslands