Háskólalestin á leið til Dalvíkur

Háskólalestin á leið til Dalvíkur

Háskólalest Háskóla Íslands er nú lögð af stað í sína árlegu ferð og er þetta fjórða vorið sem lestin brunar um landið með fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa. Í ferðum lestarinnar er lögð er áhersla á lifandi og litríka dagskrá fyrir alla fjölskylduna og eru allir viðburðir ókeypis.
Í lok mánaðarins er stefnan tekin á Dalvík en þar nemur lestin staðar í tvo daga.


Vísindaveisla í Bergi 31. maí kl. 12 - 16
Sprengjugengi, Stjörnutjald og magnaðar tilraunir

Föstudaginn 30.maí sækja nemendur í efstu bekkjum grunnskóla Dalvíkur, Árskógaskóla og Þelamerkuskóla námskeið í Háskóla unga fólksins í efnafræði, eðlisfræði, japönsku, stjörnufræði, næringarfræði, hugmyndasögu, Legó forritun, jarðfræði og vísindaheimspeki.

Laugardaginn 31. maí verður síðan slegið upp veglegri vísindaveislu í Bergi kl. 12 til 16 og þangað er öllum heimamönnum boðið. Þar verða meðal annars magnaðar sýnitilraunir, japanskir búningar og skrautskrift, leikir og þrautir, ýmis tæki og tól, furðuspeglar, mælingar og alls kyns óvæntar uppgötvanir. Opið verður í Byggðasafnið og ókeypis aðgangur, fyrirtæki í heimabyggð kynna starfsemi sína og heilmargt annað verður í boði fyrir gesti og gangandi.

Sprengjugengið landsfræga er með í för og sýnir kl. 12.30 og 14.30 og sýningar verða í hinu sívinsæla stjörnutjaldi á 30 mínútna fresti. Tjaldið verður staðsett í grunnskólanum.

Dagskrá Háskólalestarinnar er öllum opin, aðgangur ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Hægt er að fylgjast með Háskólalestinni á vef hennar og á Facebook

Allar nánari upplýsingar veitir Guðrún Bachmann lestarstjóri, gudrunba@hi.is , 864 0124.