Göngudagur Dalvíkurskóla

Göngudagurinn byrjaði með sérlega fallegum regnboga yfir skólanum og gaf fögur fyrirheit um góðan da…
Göngudagurinn byrjaði með sérlega fallegum regnboga yfir skólanum og gaf fögur fyrirheit um góðan dag.

Þriðjudaginn 24. september síðastliðinn var Göngudagur Dalvíkurskóla, en hann er hluti af föstum liðum í skólastarfinu. Þann dag ganga nemendur fyrirfram ákveðnar gönguleiðir í nágrenninu með kennurum sínum og öðru starfsfólki skólans, miskrefjandi gönguleiðir eftir aldri nemenda. 

Markmið göngudagsins falla vel að grunnþáttum menntunar í heilbrigði og velferð en þar er lögð áhersla á að leiðbeina nemendum að temja sér heilbrigða lífshætti og ábyrga umgengni við líf og umhverfi. Markvisst hreyfiuppeldi leggur grunn að líkamlegri, andlegri og félagslegri færni nemenda.


Markmið Göngudags Dalvíkurskóla eru:

  • Að efla heilbrigði, félagsfærni og náttúrulæsi
  • Auka þátt útiveru, hreyfingar og hollustu í skólastarfinu
  • Auka félagsfærni, kynnast samnemendum og starfsmönnum skólans í öðrum aðstæðum en hefðbundnu skólastarfi
  • Læra um sitt nærumhverfi, örnefni, landslag og sögur sem tengjast svæðinu
  • Læra um gróður og jurtir

Auk þess sem nemendur kynnast hver æskilegur búnaður er í gönguferðum s.s. hvernig klæðnaður hentar í dagsgöngu, að klæða sig samkvæmt veðri og læra að ganga í hóp með fararstjóra og fylgja reglum sem gilda um slíkar ferðir.

Göngudagurinn er alltaf á fyrstu vikum haustsins og er ákveðinn með stuttum fyrirvara þegar veðurspáin er góð. Í ár tókst sérlega vel til og fengum við dásamlegt haustveður, sannkallaðan sumarauka.