Frá Veisluþjónustunni

Eins og allir vita sennilega hafa verkfallsaðgerðir staðið yfir hjá verkafólki í Starfsgreinasambandinu. Enn sem komið er hefur það haft óveruleg áhrif á skólamötuneytið. Takist hins vegar ekki að semja mun ótímabundið verkfall skella á síðar í þessum mánuði. Verði verkfallið til þess að gera þurfi breytingar á matseðli verða þær breytingar tilkynntar hér.