Dalvíkurskóli auglýsir eftir sérkennara

Dalvíkurskóli auglýsir eftir sérkennara

Dalvíkurskóla

Vantar sérkennara
 
Hæfniskröfur:
-          Grunnskólakennarapróf, viðbótarmenntun í sérkennslufræðum skilyrði
-          Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur
-          Hefur frumkvæði og metnað í starfi og getu til að vinna í hóp
-          Hæfni í mannlegum samskiptum og nær vel til barna
-          Tilbúinn að takast á við fjölbreyttar áherslur í skólastarfi
-          Tilbúinn að vinna eftir fjölbreyttum kennsluaðferðum
 
Dalvíkurskóli er 260 nemenda grunnskóli. Einkunnarorð skólans eru þekking, færni, virðing og vellíðan. Skólinn leggur áherslu á snemmtæka íhlutun í námi nemenda. Í skólanum er m.a. unnið eftir kennsluaðferðunum Byrjendalæsi, Orð af orði og Töfraheimi stærðfræðinnar (stærðfræðiverkefni tengd reynsluheimi nemenda með áherslu á verklega vinnu). Dalvíkurskóli flaggar Grænfánanum. Í Dalvíkurskóla er lögð áhersla á að starfsfólki líði vel í starfi og þar er jákvæðni höfð að leiðarljósi. Allir skólar í Dalvíkurbyggð eru að innleiða Uppbyggingarstefnuna.
 
Umsóknarfrestur er til 12. júní 2013
 
Upplýsingar gefur Gísli Bjarnason skólastjóri Dalvíkurskóla gisli@dalvikurbyggd.is símar 4604980 og 8631329. Katrín Fjóla Guðmundsdóttir deildarstjóri kata@dalvikurbyggd.is símar 4604980 og 8479810. Friðrik Arnarson deildarstjóri fridrik@dalvikurbyggd.is 4604980 og 8490980.
    
Dalvíkurbyggð er sveitarfélag við utanverðan Eyjafjörð, um 40 km. norðan við Akureyri. Sveitarfélagið er framsækið og leggur metnað sinn í að veita íbúum góða þjónustu. Þar er blómlegt menningarlíf og fjölbreyttir möguleikar til íþróttaiðkunar og útivistar. Að búa í Dalvíkurbyggð er kjörið fyrir fólk á öllum aldri, barnafjölskyldur, útivistarfólk og þá sem vilja njóta nálægðar við náttúruna. Það er ómetanlegt að geta stigið út úr erli hvunndagsins og dregið að sér kraft sjávarins og fjallanna og endurnært þannig sálina.