Dalvíkurskóla vantar þroskaþjálfa í tímabundna afleysingu

Dalvíkurskóla vantar þroskaþjálfa í tímabundna afleysingu

Dalvíkurskóla vantar þroskaþjálfa í tímabundna afleysingu.

Hæfniskröfur:
- Þroskaþjáfamenntun eða önnur uppeldismenntun
- Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur
- Hefur metnað í starfi og getu til að vinna í hóp
- Hæfni í mannlegum samskiptum og nær vel til barna
- Tilbúinn að takast á við fjölbreyttar áherslur í skólastarfi
- Tilbúinn að vinna eftir fjölbreyttum kennsluaðferðum

Dalvíkurskóli er 260 nemenda grunnskóli. Einkunnarorð skólans eru þekking, færni, virðing og vellíðan. Í skólanum er verið að vinna að nokkrum þróunarverkefnum svo sem Byrjendalæsi, Orð af orði og Töfraheimi stærðfræðinnar (sem gengur út á það efla kennara í stærðfræðikennslu). Dalvíkurskóli flaggar Grænfánanum. Í Dalvíkurskóla er lögð áhersla á að starfsfólki líði vel í starfi og þar er jákvæðni höfð að leiðarljósi. Allir skólar í Dalvíkurbyggð eru að innleiða Uppbyggingarstefnuna.


Umsóknarfrestur er til 30. janúar

Upplýsingar gefur Gísli Bjarnason skólastjóri Dalvíkurskóla gisli@dalvikurbyggd.is símar 4604980 og 8631329. Katrín Fjóla Guðmundsdóttir deildastjóri kata@dalvikurbyggd.is símar 4604980 og 8479810. Friðrik Arnarsson deildastjóri fridrik@dalvikurbyggd.is 4604980 og 8490980.

Dalvíkurbyggð er sveitarfélag við utanverðan Eyjafjörð, um 40 km. norðan við Akureyri. Sveitarfélagið er framsækið og leggur metnað sinn í að veita íbúum góða þjónustu. Þar er blómlegt menningarlíf og fjölbreyttir möguleikar til íþróttaiðkunar og útivistar. Sveitarfélagið á metnaðarfulla skólastefnu. Að búa í Dalvíkurbyggð er kjörið fyrir fólk á öllum aldri, barnafjölskyldur, útivistarfólk og þá sem vilja njóta nálægðar við náttúruna. Það er ómetanlegt að geta stigið út úr erli hvunndagsins og dregið að sér kraft sjávarins og fjallanna og endurnært þannig sálina.