Dalvíkurskóla vantar kennara fyrir nemendur af erlendum uppruna

Dalvíkurskóla vantar kennara fyrir nemendur af erlendum uppruna.

Hæfniskröfur:

Grunnskólakennaramenntun
Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur
Hefur metnað í starfi og getu til að vinna í hóp
Hæfni í mannlegum samskiptum, þar sem hluti starfsins gæti falist í verkefnastjórn
Tilbúinn að takast á við nýjar og fjölbreyttar áherslur í skólastarfi
Tilbúinn að vinna eftir fjölbreyttum kennsluaðferðum

Dalvíkurskóli er 260 nemenda grunnskóli. Einkunnarorð skólans eru þekking, færni, virðing og vellíðan. Í skólanum er verið að vinna að nokkrum þróunarverkefnum svo sem Byrjendalæsi, Orð af orði og Töfraheimi stærðfræðinnar (sem gengur út á það efla kennara í stærðfræðikennslu). Dalvíkurskóli flaggar Grænfánanum. Í Dalvíkurskóla er lögð áhersla á að starfsfólki líði vel í starfi og þar er jákvæðni höfð að leiðarljósi. Allir skólar í Dalvíkurbyggð eru að innleiða Uppbyggingarstefnuna.

Umsóknarfrestur er til 28. desember.


Upplýsingar gefur Gísli Bjarnason, skólastjóri Dalvíkurskóla, gisli@dalvikurbyggd.is símar 460 4980 og 863 1329. Katrín Fjóla Guðmundsdóttir, deildarstjóri, kata@dalvikurbyggd.is  símar 460 4980 og 847 9810. Friðrik Arnarsson, deildarstjóri, fridrik@dalvikurbyggd.is  460 4980 og 849 0980.