Bleikur dagur fimmtudaginn 16. október

Október er mánuður Bleiku slaufunnar, árveknis- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélags Íslands gegn krabbameinum hjá konum. Af því tilefni biðjum við alla nemendur og starfsmenn um að klæðast einhverju bleiku fimmtudaginn 16. október eða hafa bleikan lit í fyrirrúmi þann dag. Með því sýnum við samstöðu og vekjum athygli á mikilvægi rannsókna á krabbameini.