Klæðumst bláu á BLÁA DAGINN föstudaginn 1. apríl
Alþjóðlegur dagur einhverfunnar er á næsta leiti og föstudaginn 1.apríl næstkomandi hvetjum við alla til að klæðast bláu og vekja þannig athygli á málefnum einhverfra barna en blái liturinn hefur fest sig í sessi sem litur einhverfunnar um heim allan. Líkt og undanfarin ár er það BLÁR APRÍL – Styrktarfélag barna með einhverfu, sem stendur fyrir deginum. Markmið bláa dagsins er að vekja athygli á einhverfu og fá landsmenn alla til að sýna einhverfum stuðning sinn. Með aukinni vitund og þekkingu á einhverfu byggjum við upp samfélag sem er betur í stakk búið til að skilja þarfir einhverfra og virða framlag þeirra til samfélagsins.
|
Við Mímisveg | 620 Dalvík Sími á skrifstofu: 460 4980 Netfang: ritari@dalvikurbyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:40 - 14:00. þriðjudaga og föstudaga
|
Tilkynningar um veikindi og beiðni um leyfi nemenda: 460-4980 / ritari@dalvikurbyggd.is