Árshátíð Dalvíkurskóla

Árshátíð Dalvíkurskóla er nú á næsta leiti. Sýningar verða dagana 9. og 10. apríl.

Nemendasýningar verða miðvikudaginn 9. apríl kl. 9:00 og 11:00

Almennar sýningar verða miðvikudaginn 9. apríl kl. 17:00 og fimmtudaginn 10. apríl kl. 14:00 og 17:00

Athugið að almennu sýningarnar eru ekki ætlaðar fyrir nemendur í Dalvíkurskóla.

Miðaverð:
Fullorðnir – 800 kr.
Börn á grunnskólaaldri – 400 kr.
Börn undir grunnskólaaldri – ókeypis

Nemendur í 10.bekk selja veitingar í hléi.

Hlökkum til að sjá ykkur!
Nemendur og starfsfólk Dalvíkurskóla