Árbók Dalvíkurskóla

Árbók Dalvíkurskóla
Í dag fengu nemendur 8. - 10. bekkjar afhenda árbók Dalvíkurskóla. Fyrr í vetur fengu þrjár ungar stelpur þá hugmynd að búa til árbók skólans. Í henni er að finna myndir og viðtal við alla nemendur 8. - 10. bekkjar og starfsfólkið sem kemur að þessum bekkjum. 
Með mikilli vinnu og dugnaði náðu þær að setja saman frábæra bók sem gaman verður að eiga. Hera, Áróra og Hugrún takk fyrir frábæra vinnu.
Myndir frá afhendingunni má sjá hér.