5. bekkur fær stjörnukort að gjöf

5. bekkur fær stjörnukort að gjöf

Á síðustu vikum  hefur Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness fært öllum 5. bekkingum á landinu stjörnukort að gjöf. Í dag fengu nemendur 5. MM kortin sín. Við hvetjum foreldra til að fara út með börnunum og skoða stjörnur næst þegar heiðskírt verður. Við viljum benda á vefinn www.stjornuskodun.is en þar er að finna upplýsingar um stjörnufræði og stjörnuskoðun. Einnig má benda á stjörnufræðiforritið Stellarium sem er ókeypis og hægt að nálgast á http://www.astro.is/stellarium/.