Halló krakkar, pabbar og mömmur, afar og ömmur, frænkur og frændur !!
Vorhátíð Dalvíkurskóla verður fimmtudaginn 17. maí frá klukkan 11:30 til 13:30. Þennan dag verður skólinn opinn öllum sem vilja skemmta sér saman og skoða afrakstur af vinnu nemenda.
Meðal þess sem boðið verður upp á er:
- Opið hús þar sem vinna nemenda verður til sýnis
- Kaffihúsastemmning í hátíðarsalnum. (9. bekkur selur kaffi og meðlæti á 700 kr. fyrir 14 ára og eldri, 300 kr. fyrir börn 6-13 ára. Frítt fyrir yngri börn)
- Förðun og andlitsmálning
- Lukkupakkar sem 6. bekkur hefur til sölu á 200 kr. stk
- Hestar
- Hjólavöllur
- Spilastofa
- Ásadans
- Allir fá ís í boði foreldrafélagsins
- Sýning á námsmöppum hjá 1. – 10. bekk
- Bókasafn
- Flóamarkaður
Foreldrafélag, nemendur og starfsfólk Dalvíkurskóla.
|
Við Mímisveg | 620 Dalvík Sími á skrifstofu: 460 4980 Netfang: ritari@dalvikurbyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:40 - 14:00. þriðjudaga og föstudaga
|
Tilkynningar um veikindi og beiðni um leyfi nemenda: 460-4980 / ritari@dalvikurbyggd.is