Útivistardagur í fjallinu hjá nemendum 7.-10. bekkjar

Útivistardagur í fjallinu hjá nemendum 7.-10. bekkjar

Fimmtudaginn 1. febrúar er áætlað að hafa útivistardag hjá 7. – 10. bekk Dalvíkurskóla, ef veður leyfir. Nemendur fara í fjallið. Mæting er við skíðaskálann Brekkusel klukkan 8:00 – 8:30, og eiga nemendur að setja sig þar í samband við umsjónarkennara. Nemendur eiga að koma vel klæddir með skíðin sín, brettin og/eða sleða. Leyfilegt verður að vera á sleðum á ákveðnu svæði. Vel útilátið nesti er nauðsynlegt, skólinn býður upp á heitt kakó handa öllum. Munið eftir aukafötum (sokkum, vettlingum, peysu......) í bakpokann. Ætlast er til að allir nemendur séu með HJÁLMA. Útivistardagur stendur frá kl. 8:00/8:30 – 13:00. Matur verður í Brekkuseli frá kl. 11:30 – 12:00.

Boðið verður upp á leigu á skíðabúnaði nemendum að kostnaðarlausu.

Ef veðrið verður andstyggilegt, rigning, rok eða stórhríð eiga nemendur að mæta í skólann og verður þá venjulegur skóladagur.

Munum að virða þær reglur sem gilda á skíðasvæðinu.