Útivistadagur 4.-6. bekkjar - breytt dagsetning

ATH! BREYTT DAGSETNING Á ÚTIVISTARDEGI!

Á morgun miðvikudaginn 8. mars verður útivistardagur í fjallinu fyrir 4.-6. bekk. Nemendur fara í fjallið.
Mæting er við skíðaskálann Brekkusel klukkan 7:50 – 8:30 og eiga nemendur að setja sig þar í samband við umsjónarkennara. Hver bekkur getur geymt dótið sitt á sérmerktum svæðum. Nemendur eiga að koma vel klæddir, með hjálm, skíði, bretti, sleða eða þotur. (Munið að merkja allt vel). Ekki er leyfilegt að vera með dekkjaslöngur í fjallinu. Leyfilegt verður að vera á sleðum og þotum á ákveðnu svæði. Vel útilátið nesti er nauðsynlegt, skólinn býður upp á heitt kakó handa öllum. Munið eftir aukafötum (sokkum, vettlingum, peysu...). Nauðsynlegt er að nemendur séu með HJÁLMA. Það er alfarið á ábyrgð foreldra ef krakkarnir koma hjálmlausir. Útivistardagur stendur frá kl. 8:00/8:30 – 13:30. Foreldrum er þó frjálst að sækja börn sín eftir kl. 12:00. Matur verður í Brekkuseli kl. 11:30 – 12:00.
Nemendur geta fengið skíðabúnað að láni sér að kostnaðarlausu.
Ef veðrið verður andstyggilegt, rigning, rok eða stórhríð eiga nemendur að mæta í skólann og verður þá venjulegur skóladagur.
Munum að virða þær reglur sem gilda á skíðasvæðinu.

Ef þið hafið athugasemdir skuluð þið hafa samband við Katrínu Fjólu deildarstjóra eða Gísla skólastjóra.