Nú í apríl var stykjum úthlutað úr Sprotasjóði sem styrkir árlega þróunarverkefni á öllum skólastigum. Þau gleðilegu tíðindi hafa borist að Grunnskólarnir í Dalvíkurbyggð hafi fengið úthlutað 1.600.000 krónum í þróunarstarf sem ganga mun undir nafninu Byrgjum brunninn-árangursríkt nám í upphafi grunnskóla. Markmið þess er að grípa sem fyrst inn í og styðja sérstaklega við nám þeirra nemenda sem við upphaf grunnskólagöngu hafa litla færni í undirstöðuþáttum lestrar eða lítinn talnaskilning. Stefnan er að þróa árangursríka kennsluhætti í sérkennslu á fyrstu árum grunnskólans sem bæði verði til hagsbóta fyrir nemendur og síðar meir sveitarsjóð. Verkefnisstjórar sérkennslu í Dalvíkurskóla, þær Dóróþea Reimarsdóttir og Gunnhildur Birnisdóttir, munu skipuleggja og halda utan um verkefnið en fleiri sérfræðingar munu koma að þessu verkefni ásamt kennurum á yngsta stigi skólanna. Einnig er stefnt að því að foreldrar þeirra barna sem þurfa sérstakt inngrip verði virkir þátttakendur í vinnunni. Þróunarstarfið verður byggt ofan á þau skref sem stigin hafa verið í þessa átt við Dalvíkurskóla á síðustu tveimur árum.
|
Við Mímisveg | 620 Dalvík Sími á skrifstofu: 460 4980 Netfang: ritari@dalvikurbyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:40 - 14:00. þriðjudaga og föstudaga
|
Tilkynningar um veikindi og beiðni um leyfi nemenda: 460-4980 / ritari@dalvikurbyggd.is