Skólalóðin endurbætt

Skólalóðin endurbætt

Í sumar verður hafist handa við endurbætur á skólalóð Dalvíkurskóla. Lokið var við að að hanna skólalóðina út frá hugmyndum nemenda og starfsfólks sl. vor og stefnt er að því að framkvæmdum ljúki á næstu þrem árum.

Í fyrsta áfanga verður lagður göngustígur frá nýju sleppisvæði við Mímsveg að skólanum, nýr kastali settur upp og undirlag á leiksvæði norðan við skólann endurnýjað. Auk þess verður keyptur ærslabelgur (merktur gulur á myndinni) sem staðstettur verður norðan við gervigrasvöllinn. Búið er að kaupa tvo pannavelli sem eru litlir færanlegir fótboltavellir með lágum böttum og verður þeim komið fyrir við skólann.

Í öðrum áfanga er m.a. gert ráð fyrir að endurbæta malbiksvellina, fótbolta- og körfuboltavöllinn auk minni leiktækja og í þriðja áfanga verður hugað að útikennslusvæði við skólann og gróðri.

Á teikningunni sem sést hér til hiðar má sjá hvernig skólalóðin mun líta út eftir rúm tvö ár þegar framkvæmdum lýkur. Heildarkostnaður við hönnun og frágang lóðar er áætlaður um 43 milljónir.