Vegna vondrar veðurspár fyrir næstu daga vilja skólastjórnendur taka það fram að skólahaldi er afar sjaldan aflýst í Dalvíkurskóla. Við minnum á að þegar veður gerast vond getur það talist álitamál hvenær hægt er að ætla nemendum að sækja skóla. Sé skóla ekki aflýst með auglýsingu í útvarpi verður mat foreldra að ráða því hvenær nemendur eru kyrrsettir heima. Tilkynna skal slíkt í skólann eins fljótt og kostur er. Munið að nemendur eru á ábyrgð foreldra á leið í og úr skóla. Ekki skal láta nemendur vera eina á ferð í vondu veðri.
Ef ófært verður fyrir rútur á morgun munu foreldrar rútubarna fá upplýsingar um það með SMS-skeyti.
Skólastjórnendur
|
Við Mímisveg | 620 Dalvík Sími á skrifstofu: 460 4980 Netfang: ritari@dalvikurbyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:40 - 14:00. þriðjudaga og föstudaga
|
Tilkynningar um veikindi og beiðni um leyfi nemenda: 460-4980 / ritari@dalvikurbyggd.is