Skólabyrjun

Skólabyrjun

Nú styttist í skólabyrjun, Við vonum að allir hafi notið sín í sumarfríi og séu endurnærðir eftir það. Við í Dalvíkurskóla hlökkum til að takast á við verkefni vetrarins í samstarfið við foreldra/forráðamenn og nemendur.

Skólasetning Dalvíkurskóla verður mánudaginn 22. ágúst.

Allir í 2. -10. bekk mæta í skólann kl. 8:00 í sína heimastofu, (umsjónarkennarar senda nánari upplýsingar um heimastofur).

Nemendur í 1. bekk mæta í boðað viðtal til umsjónarkennara sama dag.

Skólasetning á sal skólans verður sem hér segir:

Kl. 8:00 2. – 4 bekkur

Kl 8:30 5. – 6. bekkur

Kl. 9:00 7. – 10. bekkur

Kennsla eftir stundaskrá