Samráðsdagur með foreldrum 12. október

Mánudaginn 12. október nk. verður samráðsdagur með foreldrum í Dalvíkurskóla að þessu sinni verða samtölin tekin í síma eða í fundarforritum í gegnum tölvu. Markmið með samskiptadegi er m.a. að foreldrar, nemandi og kennari ræði saman um náms- og félagslega stöðu nemandans og að tekin sé sameiginleg ákvörðun um næstu markmið hans.

Tímabókanir eru með rafrænum hætti í gegnum Mentor kerfið. Við biðjum ykkur því um að fara inn á www.infomentor.is og bóka ykkar viðtalstíma þar. Umsjónarkennarar munu senda tengil í tölvupósti fyrir hvert viðtal.

Hægt er að byrja að skrá sig í viðtöl mánudaginn 5. október kl. 12:00.
Lokadagur skráningar er kl.12:00 fimmtudaginn 8. október.

Þeir sem eiga fleiri en eitt barn í skólanum eru hvattir til þess að skrá sig sem allra fyrst, eftir að skráning hefst til að fá viðtalstíma í röð hjá mismunandi kennurum. Ykkur er bent á að hafa samband við umsjónarkennara ef þess þarf.

Bóka foreldraviðtöl - Kennslumyndband fyrir aðstandendur