30. nóvember mun Magnús Stefánsson forvarnafulltrúi koma og fræða nemendur Grunnskóla Dalvíkurbyggðar um hættur áfengis og fíkniefna. Fræðsla hans er rótgróin og hentar afar vel fyrir unglinga. Magnús mun fara inn í 8. - 10. bekk um morguninn en um kvöldið munum við halda foreldrafund í Vikurröst. Þar mun Magnús fræða þau sem eldri eru um hætturnar sem þessu fylgja og hvernig foreldrar geti nálgast börnin sín.
Einnig mun Maggi, verkefnisstjóri félagsmiðstöðvarinnar, kynna ferð á Samféshátíðina sem verður haldin í mars á næsta ári. Félagsmiðstöðin fær takmarkaða miða og er mikilvægt að foreldrar þeirra barna sem vilja fara á hátíðina mæti á Marita-fræðsluna og fái kynningarbréf með upplýsingum.
|
Við Mímisveg | 620 Dalvík Sími á skrifstofu: 460 4980 Netfang: ritari@dalvikurbyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:40 - 14:00. þriðjudaga og föstudaga
|
Tilkynningar um veikindi og beiðni um leyfi nemenda: 460-4980 / ritari@dalvikurbyggd.is