Snjórinn er til margra hluta nytsamlegur og nóg framboð af honum á skólalóðinni okkar. Það er hægt að byggja heilu virkin og gera göng út og suður og hafa nemendur verið mjög iðnir við þá iðju. Það er gaman að horfa á þau við byggingarnar og er samhjálpin oftast í hávegum höfð, þótt séu undantekningar þar á og slettist uppá vinskapinn annað slagið. En enginn á snjóinn, hann fellur af himnum ofan á skólalóðina og allir mega vera með án þess endilega að þurfa að spyrja einhvern um leyfi til þess.
Í þriðja bekk notuðum við snjóinn í útikennslunni og fórum í ísgerð. Við settum mjólk og kakómalt í poka, settum síðan pokann ofaní annan stærri sem innihélt gróft salt og snjó. Síðan skiptumst við á að nudda pokann, þar til saltið flutti kuldann úr snjónum smám saman yfir í mjólkina og viti menn, hún fraus og úr varð hið besta súkkulaðiískrap!
má sjá myndir úr snjónum og ísgerðinni.
|
Við Mímisveg | 620 Dalvík Sími á skrifstofu: 460 4980 Netfang: ritari@dalvikurbyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:40 - 14:00. þriðjudaga og föstudaga
|
Tilkynningar um veikindi og beiðni um leyfi nemenda: 460-4980 / ritari@dalvikurbyggd.is