Desemberdagar

13. des.     Góðverkadagur. Nemendur gera góðverk út um allan bæ.

15. des.     Nemendur í 1. – 10. bekk í Dalvíkurskóla skili „litlu jólapökkunum“ til umsjónarkennara. Hámarksverð kr. 750.

19. des.     Litlu jól í Dalvíkurskóla  hjá 7. – 10. bekk kl. 20:00-23:30

Rútuferðir:      Frá Búrfelli/Skeiði kl. 19:30

                          Frá Melum kl. 19:30

                          Frá Hauganesi kl. 19:30

Heimferð ca. 21:30 og 23:45

20. des.           Litlu jól í Dalvíkurskóla  hjá 1.– 3. bekk  kl. 09:00 (byrja í stofum)

Litlu jól í Dalvíkurskóla  hjá 4. – 6. bekk  kl. 09:00 (byrja í sal)  

Nemendur hafi með sér kerti í kertastjaka, drykk og nesti (t.d. smákökur)

Nemendur 6. bekkjar þurfa að mæta kl. 8:45

Foreldrar eru velkomnir að koma í hátíðarsal og dansa í kringum jólatré með börnum sínum

 

Rútuferðir:    

Frá Búrfelli/Skeiði kl. 08:30, frá Dalvíkurskóla kl. 11:00

Frá Þverá kl. 08:20, frá Dalvíkurskóla kl. 11:00

Frá Hauganesi kl. 08:30, frá Dalvíkurskóla kl. 11:00

23. des.            Jólapóstur samkvæmt hefð í Dalvíkurskóla. Skólinn er opinn frá kl. 13:00 – 16:00. Nemendur og starfsfólk taka á móti jólakortum í skólanum (inngangur nr.1). Nemendur í 7. bekk  mæta kl. 12:45 til að flokka póst. Þeir nemendur sem verða jólasveinar á aðfangadag eiga að mæta kl. 12:45 þennan dag og flokka póst. Verð fyrir hvert kort er 100 kr.

Jólasveinar (nemendur úr 8. – 10. bekk) bera út jólakortin á aðfangadag frá kl. 10:30 – 14:00. Öll vinna er unnin í sjálfboðavinnu. Unnið til styrktar skólabókasafni Dalvíkurskóla.

Að gefnu tilefni skal tekið fram að borinn verður út póstur á Dalvík og í Svarfaðardal.

Jólaleyfi nemenda: 21. des. 2017 – 2. jan. 2018

3. jan.              Kennsla hefst að loknu jólaleyfi miðvikudaginn 3. janúar kl. 8:00 og kennt samkvæmt stundatöflu.

Gleðileg jól