Dalvíkurskóli leitar að stærðfræðikennara á mið- og unglingastigi

Dalvíkurskóli leitar að stærðfræðikennara á mið- og unglingastigi

Dalvíkurskóli leitar að stærðfræðikennara á mið
– og unglingastigi frá og með 1. ágúst 2019

HÆFNISKRÖFUR:
• Grunnskólakennarapróf
• Reynsla af kennslu í stærðfræði á unglingastigi
• Tilbúinn að vinna eftir fjölbreyttum og árangursríkum kennsluaðferðum
• Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur
• Hefur frumkvæði og metnað í starfi og getu til að vinna í teymi
• Hæfni í mannlegum samskiptum og nær vel til barna
• Tilbúinn að takast á við fjölbreyttar áherslur í skólastarfi

Dalvíkurskóli er 218 nemenda grunnskóli. Einkunnarorð skólans eru: Þekking og færni,
virðing og vellíðan. Skólinn leggur áherslu á snemmtæka íhlutun í námi nemenda.
Skólastarfið byggist á teymiskennslu kennara. Í skólanum er m.a. unnið eftir kennsluaðferðunum
Byrjendalæsi, Orð af orði og PALS. Dalvíkurskóli flaggar Grænfánanum.
Í Dalvíkurskóla er lögð áhersla á að starfsfólki líði vel í starfi og þar er jákvæðni höfð að
leiðarljósi. Allir skólar í Dalvíkurbyggð starfa eftir Uppbyggingarstefnunni.

Umsóknarfrestur er til 27. mars 2019

Upplýsingar gefur Gísli Bjarnason skólastjóri Dalvíkurskóla gisli@dalvikurbyggd.is

símar 460 4980 og 863 1329.
Umsókn ásamt ferilsskrá skal sent á netfangið gisli@dalvikurbyggd.is.