Nemendur og starfsfólk Dalvíkurskóla gáfu einelti rauða spjaldið þann 8. nóvember, en sá dagur er helgaður baráttunni gegn einelti. Gísli Bjarnason skólastjóri hélt stutta ræðu um einelti og hvað það getur haft í för með sér. Síðan lyftu nemendur rauða spjaldinu og þögðu í eina mínútu og voru það táknræn mótmæli gegn einelti í skólanum. Margir nemendur og starfsfólk klæddust einhverju grænu í tilefni dagsins.
Við Mímisveg | 620 Dalvík Sími á skrifstofu: 460 4980 Netfang: ritari@dalvikurbyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:40 - 14:00. þriðjudaga og föstudaga
|
Tilkynningar um veikindi og beiðni um leyfi nemenda: 460-4980 / ritari@dalvikurbyggd.is