Breytingar á lesfimiprófum

Breytingar á lesfimiprófum

Til foreldra og nemenda
Efni: Breytingar á lesfimiprófum Menntamálastofnunar í janúar 2020.
Undanfarin ár hafa lesfimipróf frá Menntamálastofnun verið notuð í ykkar skóla og þið hafið fengið upplýs-ingar um niðurstöðurnar í vegnum orðum á mínútu. Það þýðir að lesinn orðafjöldi er stilltur af út frá þyngd textans.
Nú þegar töluverð reynsla er komin á prófin er tímabært að endurskoða þau og þróa enn frekar. Hingað til hafa nemendur lesið A-textann í september og maí og B-textann í janúar en nú verður B-textinn tekinn út svo nemendur lesa A-textann í öll þrjú skiptin.
Þetta gerir túlkun mun auðveldari og gefur ykkur réttari mynd af þróun lestrarfærninnar.
Þessar breytingar hafa þau áhrif að uppfæra þarf töflu sem reiknar vegin orð á mínútu og mun það hafa afturvirk áhrif á nokkurn hóp nemenda þannig að niðurstaðan frá í september getur hliðrast upp eða niður um þrjú orð.
Því gæti orðið misræmi á útprentanlega einkunnablaðinu sem þið hafið þegar í höndunum frá síðastliðnu hausti og því sem þið fáið eftir janúarprófin.
Andrea Anna Guðjónsdóttir, sérfræðingur
Auðun Valborgarson, sérfræðingur