Í mars verður skemmtileg þemavinna sem ber yfirskriftina Astrid Lindgren. Allur skólinn mun vinna að þessu skemmtilega verkefni og munu kennarar reyna eftir bestu getu að vera með þemavinnu tengda Astrid Lindgren í allflestum fögum í skólanum. Þemavinnunni lýkur síðan með árshátíð skólans dagana 20. - 22. mars þar sem nemendur munu sýna afraksturinn í leik og söng. Áhorfendur munu upplifa stórskemmtilega sýningu þar sem ævi Astridar og helstu verk hennar munu koma við sögu. Hér má sem dæmi nefna: Línu Langsokk, Ronju Ræningjadóttur, Maddit og Betu og Kalla Blómkvist.
|
Við Mímisveg | 620 Dalvík Sími á skrifstofu: 460 4980 Netfang: ritari@dalvikurbyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:40 - 14:00. þriðjudaga og föstudaga
|
Tilkynningar um veikindi og beiðni um leyfi nemenda: 460-4980 / ritari@dalvikurbyggd.is