Viltu taka þátt í að velja bestu barnabók liðins árs

Viltu taka þátt í að velja bestu barnabók liðins árs

Á bókasafninu er nú hafin atkvæðagreisla um bestu barnabók liðins árs fyrir börn á aldrinum 6-12 ára. 
Hægt er að greiða atkvæði til 15. mars n.k. Hver lesandi má velja allt að 3 bækur. 
Úrslitin verða kynnt á landsvísu á Sumardaginn fyrsta þann 22. apríl, við hátíðlega athöfn í aðalsafni Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15, Reykjavík.  Tvær bækur verða verðlaunaðar, ein frumsamin íslensk og önnur þýdd. 
Að því loknu verða tveir heppnir þátttakendur í Dalvíkurbyggð dregnir út og hreppa bókagjöf.