Viltu taka þátt í að velja bestu barnabók liðins árs

Á Bókasafninu er hafin atkvæðagreiðsla um bestu barnabók liðsins árs fyrir börn á aldrinum 6-12 ára. Hver lesandi má velja allt að 3 bækur.

Úrslitin verða kynnt á sumardaginn fyrsta, þann 23. apríl, við hátíðlega athöfn í aðalsafni Borgarbókasafns Tryggvagötu 15. Tvær bækur verða verðlaunaðar, ein frumsamin íslensk og önnur þýdd.

Hægt er að taka þátt á Bókasafninu til 20. mars. Þar eru þátttökuseðlar og kjörkassi.
Tveir heppnir þátttakendur verða dregnir út og hreppa bókagjöf.

Krakkar komið endilega og veljið ykkar bók og freistið þess að hreppa bókagjöfina.


Bókasafn Dalvíkur