Vetraropnun bókasafnsins

Við viljum vekja athygli á því að frá og með 1. sept. (næstkomandi föstudag)
er safnið opið alla virka daga, samkv. vetraropnun.
Við hvetjum alla íbúa Dalvíkurbyggðar til að nýta sér það
sem bókasafnið hefur upp á að bjóða.
Við minnum á, að þar er fjöldi blaða og tímarita sem hægt
er að setjast niður og lesa eða fá lánuð.
Skólafólk getur fengið heimildir hjá safninu eða við útvegum þær frá
öðrum söfnum.
Einnig koma flestar bækur á safnið fljótlega eftir að þær koma út.