Útlánamet

Útlánamet í Bókasafninu í febrúar.

Til hamingju íbúar í Dalvíkurbyggð!!!!
Nú í febrúarmánuði var enn slegið útlánamet hjá Bókasafninu.  Lánaðar voru út 1121 titill, sem er meira en áður hefur lánast á einum mánuði.   September og október hafa yfirleitt verið bestu mánuðirnir og fóru einnig yfir 1000 útlán í fyrsta skipti í sögu safnsins 2006.  En febrúar með sína 28 daga sló þeim við.