Upplestur á bókasafni

Upplestur á bókasafni

Mánudaginn 13. desember sl. kom Eyrún Ósk Jónsdóttir hér á bókasafnið og las upp úr bók sinni
- L7: hrafnar, sóleyjar og myrra - . Börnum úr Grunnskóla Dalvíkur var boðið að koma og hlusta.
Eftir lesturinn ríkti mikil ánægja hjá börnunum og þurftu sum þeirra að spyrja margra spurninga.
Var mikið spurt um bókina og ætluðu þó nokkrir að óska eftir henni í jólagjöf.  Við þökkum Eyrúnu Ósk kærlega fyrir komuna.