Sumarstörf á bókasafninu og upplýsingamiðstöðinni.

Sumarstörf á bókasafninu og upplýsingamiðstöðinni.

Dalvíkurbyggð leitar eftir sumarstarfsmanni fyrir Bókasafn Dalvíkurbyggðar

 

Bókasafn Dalvíkurbyggðar auglýsir laust til umsóknar 100%starf og annan hvern laugardag í sumarafleysingum á bókasafninu sem staðsett er í Menningarhúsinu Bergi.

Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf um miðjan maí og unnið fram í miðjan september. Um er að ræða dagvinnu frá 9-17, auk annan hvern laugardag. Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri og æskilegt er að hann hafi stúdentspróf eða aðra sambærilega menntun.

Við óskum eftir starfsmanni með sérstaklega ríka þjónustulund, góða tungumálakunnáttu og frumkvæði í starfi. Góð tölvukunnátta er skilyrði til að geta sinnt verkefnum bæði á bókasafni sem og í upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn. Bókasafnið og upplýsingamiðstöð Dalvíkurbyggðar vinna í náinni samvinnu hvort við annað enda bæði staðsett í Menningarhúsinu Bergi. Umsækjandi þarf því að vera tilbúin að sinna verkefnum í upplýsingamiðstöð til jafns á við verkefni bókasafnsins.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum sveitafélaga.

 

Dalvíkurbyggð leitar eftir sumarstarfsmanni fyrir upplýsingamiðstöð í Bergi

 

Dalvíkurbyggð auglýsir laust til umsóknar 81%starf í upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn sem staðsett er í Menningarhúsinu Bergi.

Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri og æskilegt er að hann hafi stúdentspróf eða aðra sambærilega menntun. Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf um miðjan maí og unnið fram í miðjan september. Um er að ræða dagvinnu auk annan hvern laugardag

Starfsmaður verður í daglegum samskiptum við ferðamenn af ólíkum þjóðernum og er góð tungumálakunnátta því afar mikilvæg. Upplýsingamiðstöðin og Bókasafn Dalvíkurbyggðar vinna í nánu samstarfi og felst hluti af starfi starfsmanns í upplýsingamiðstöð einnig yfir í verkefnum á bókasafninu. Umsækjandi þarf því að vera sveigjanlegur í starfi og vera tilbúin að sinna verkefnum á bókasafni til jafns á við verkefni upplýsingamiðstöðvar.

Helstu verkefni á upplýsingamiðstöð snúa að upplýsingagjöf til ferðamanna og samskipta við ferðaþjónustuaðila á svæðinu. Starfsmaður mun bera ábyrgð á framboði bæklinga í upplýsingamiðstöð ásamt því að halda skráningu á gestum sem sækja miðstöðina.

Mikilvægt er að umsækjandi búi yfir mikilli tölvufærni og geti nýtt sér upplýsingatækni í starfi. Mikil áhersla er lögð á frumkvæði í starfi og skipulögð vinnubrögð. Umsækjandi þarf að hafa ríka þjónustulund og sýna framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. Að lokum er farið fram á þekkingu á ferðaþjónustu og er staðbundin þekking einnig æskileg. Reynsla af sambærilegum störfum er ekki skilyrði en álitið sem kostur.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum sveitafélaga.

 

Umsóknarfrestur er til 15. apríl. Umsóknum ásamt ferilskrá má skila á Bókasafn Dalvíkurbyggðar eða á netfangið: bjork.eldjarn@dalvikurbyggd.is. 

Allar frekari upplýsingar veitir Björk Eldjárn í síma 4604930/8667255 eða á netfanginu bjork.eldjarn@dalvikurbyggd.is