Sumarlestri 2013 lokið

Sumarlestri 2013 lokið

Í dag 27. ágúst lauk sumarlestri bókasafnsins. Alls tóku sjö börn 8 - 10 ára þátt í lestrinum. Þau lásu samtals 4097 bls. á tímabilinu júní - ágúst.  Fimm bókaormar mættu til að taka á móti viðurkenningu og dregið var um hver hlaut bók í verðlaun. Hér er mynd af þeim Þorsteini Jakobi, Elvari Frey, Þormari með bókina sem hann fékk í verðlaun, Torfa Jóhanni og Þresti. Takk fyrir þátttökuna strákar.