Sögustundir fyrir börn

Í vetur verða sögustundir fyrir börn á fimmtudögum kl. 16:15. Fram að áramótum verða sögustundirnar ýmist fyrir pólsku eða íslenskumælandi börn og miðaðar ýmist við leikskóla-/grunnskólanemendur. Nánar skiptist þetta eins og hér segir:

Dagsetning            Tungumál    Aldurshópur
24.október pólska grunnskólanemendur
31. október íslenska leikskólanemendur
7. nóvember pólska leikskólanemendur
14. nóvember íslenska grunnskólanemendur
21. nóvember pólska grunnskólanemendur
28. nóvember íslenska leikskólanemendur
5. desember pólska leikskólanemendur
12. desember íslenska grunnskólanemendur

Sögumenn eru sjálfboðaliðar og okkur vantar fleiri sem vilja taka að sér að segja börnum sögur. Endilega látið okkur vita ef þið getið hugsað ykkur að taka þátt. Einnig leitum við að sögumönnum sem treysta sér að lesa fyrir enskumælandi börn og við bætum þeim þá við eftir áramótin.