Sögustund 4. febrúar

Sögustund 4. febrúar

Nú ætlum við hjá bókasafninu að breyta til með mánaðarlegar sögustundir.  Hér eftir verða stundirnar á föstudögum kl. 16.00. 
Næsta stund verður föstudaginn 4. febr. n.k.  að þessu sinni verður lesefnið fyrir áhugasöm börn úr 1. og 2. bekk grunnskóla, en að sjálfsögðu eru allir velkomnir. Sögustundin í mars verður helguð 4 og 5 ára börnum frá Kátakoti og Leikbæ.
Til stendur að búa til bókaorm sem hlykkjar sig um bókasafnið og verður vonandi orðin ógnarlangur í vor. Eftir því sem fleiri koma því lengri verður ormurinn.  Sjáumst öll á sögustund í bókasafninu.