Pólsk verðlaunakvikmynd í Bergi

Pólsk verðlaunakvikmynd í Bergi

Laugardaginn 24. október kl. 17:00 verður sérstök sýning á verðlaunakvikmyndinni "Bogowie" í Bergi í boði bókasafnsins. Allir Pólverjar í Dalvíkurbyggð fá boðsmiða á sýninguna og hver og einn hefur heimild til að bjóða með sér einum Íslendingi. Ef þú hefur áhuga á að sjá það nýjasta og besta frá Póllandi þá skaltu koma þér vel við pólskan samstarfsmann eða nágranna og athuga hvort sá eða sú gæti boðið þér með sér. Myndin er með pólsku tali og enskum texta.  Kynntu þér efni myndarinnar á IMDB