Nýjar og spennandi bækur á bókasafninu

Nýjar og spennandi bækur á bókasafninu

Vekjum athygli ykkar á að nýjum bókum fjölgar óðfluga hjá okkur á Bókasafninu þessa dagana. Íslensku spennuhöfundarnir komnir. Jafnframt minnum við á að hægt er að fá fjölda tímarita t.d. Mannlíf, Vikuna, Húsfreyjuna, Séð og heyrt og fl. að láni. Einnig er hægt að lesa dagblöðin á Bókasafninu.
Verið velkomin og eigið notalega stund, sjón er sögu ríkari.

Árgjald fullorðinna er kr. 1.000.- en frítt fyrir börn til 16 ára áldurs, eldri borgara og öryrkja.

Bókasafn Dalvíkur