Norræna bókasafnsvikan 2010

Norræna bókasafnsvikan 2010

 -   Haust- og vetrardagarnir á Norðurlöndunum eru afskaplega stuttir. Hér áður fyrr, fyrir tíma sjónvarpsins og
tölvunnar, var upplestsur og sagnalestur á myrkum vetrarkvöldum vinsæl og útbreidd hefð.  -  

Þann 8. nóvember n.k. hefst Norræna bókasafnsvikan í 14. skipti með það fyrir augum að gæða norrænu sagnahefðina nýju lífi.     Að þessu tilefni mun Bókasafnið standa fyrir upplestrum fyrir grunnskólabörn á Dalvík.  Upplesturinn fer framm í salnum í Bergi alla morgna vikunnar  og hefst kl. 9:00.   Þar verður sagt frá töfrum Norðursins, sem er þema vikunnar. Lesnir verða kaflar úr bókunum  - Dóttir ávítarans eftir Lene Kaaberböl og Sagan af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason.